mánudagur 6 september 09 2010


TF-UFO - CAP-10B


   Information in English below

Um flugvélina TF-UFO:

TF-UFO var keypt ný frá verksmiðjunni árið 1978, og var fyrsta flug hennar þann 6.júní það ár. Fyrsta flugið var farið af tilraunaflugmanni frá verksmiðjunum (að nafni Ernoult) og stóð það í tvær klukkustundir og tuttugu mínótur. Fyrstu eigendur vélarinnar voru Agnar Kofoed-Hansen, þáverandi Flugmálastjóri,  Úlfar Þórðarson augnlæknir þáverandi yfirtrúnaðarlæknir Flugmálastjórnar, Magnús Norðdahl flugstjóri hjá Flugleiðum og Einar Sigurðsson. Kaupverð vélarinnar var 178.000 franskir frankar og þurfti að fá sérstakt leyfi hjá Seðlabanka Íslands fyrir gjaldeyri til kaupanna. Það leyfi hefði vafalítið ekki fengist nema fyrir tilstuðlan Agnars, sem notaði sambönd sín í stjórnkerfinu til að hafa áhrif á Seðlabankan.  Einnig þurfti sérstakt innflutningsleyfi fyrir svo dýrum hlut, og Agnar notaði sín sambönd til að verða þeim félögum út um það.

Magnús Norðdahl flaug vélinni fyrstur íslendinga, þann 7. Júní. Þann 20. Júní tekur Elíeser Jónsson við flugvélinni í Bernay og fer sitt fyrsta flug sem stóð í 15 mínótur í kringum flugvöllinn. Að því loknu, setur hann færanlegt ADF tæki í vélina og flýgur henni samdægurs til Glasgow í Skotlandi með viðkomu í Manchester. Daginn eftir, þann 21. Júní flýgur hann frá Glasgow til Stornoway og þaðan til Voga í Færeyjum. Frá Vogum flýgur hann síðan til Reykjavíkur og kemur þangað undir kvöld þann 21. Júní. Flugtíminn frá Vogum til Reykjavíkur var 3:55. Fyrsta flug vélarinnar á Íslandi var farið þann 22. Júní, þegar Magnús fór í flug í kringum Reykjavík.

Flugvélin hefur allar götur síðan verið notuð til listflugs og sýningarflugs á flugsýningum. Í gegnum árin hafa verið ýmsir eigendur að vélinni. Núverandi eigendur eru Elías Erlingsson, Friðrik Ingi Friðriksson og Sigurjón Valsson.
 


Almennur fróðleikur um Mudry Cap 10B flugvélar:

Cap 10B er frönsk þjálfunarvél í listflugi, og var þróuð út frá heimasmíðaðri flugvél sem heitir Piel Super Emerude. Fyrsta flug flugvélar af þessari tegund var flogið árið 1968, og var tegundin sett í framleiðslu sem CAP-10B. Franski flotinn keypti mikið af þessum flugvélum og notaði í þjálfun flugmanna sinna. Einnig hafa Mexíkanar, Ástralir og Marokkómenn notað CAP-10B við þjálfun herflugmanna. Um 200 vélar af þessari tegund hafa verið seldar til einkaaðila í gegnum árin, og hafa margir af bestu listflugmönnum heims byrjað sinn feril á CAP-10B. Vélin er enn í framleiðslu í endurbættri útgáfu sem CAP-10C. 


     Information in English:

The history of TF-UFO:


TF-UFO was bought new from the factory in 1978 and it´s first flight was a factory test flight lasting two hours twenty minutes on the 6th of June 1978 with test pilot Ernoult at the helm. The initial owner were Agnar Kofoed-Hansen who at the time was director of Civil Aviation in Iceland, Úlfar Þórðarson who at the time was CAA´s chief Aeronautical Medical Examiner, Magnús Norðdahl Captain with Icelandair and Einar Sigurðsson. The purchase price of the aircraft, at the time, was 178.000 French Franks, and a special permission was needed from the Icelandic Central Bank to proceed with the transaction of such an amount! Such a permission would no doubt never have been given, if it had not been for Mr. Kofoed-Hansen´s  knowledge of the „system“ and lobbying in the right circles!

Mr. Norðdahl was the first icelander to fly the aircraft, when on the 7th of june he had a flight in it with Mr. Ernoult as instructor. On the 20th of june, the designated ferry pilot Mr. Elieser Jonsson accepts resposibility for the aircraft and makes a 15 minutes local flight around Bernay. After the local flight, he installs a portable ADF receiver and sets off on the ferry, arriving in Glasgow in the afternoon after a brief fuel stop in Manchester. The day after, on the 21st, he flys from Glasgow to Vagar via Stornoway and from Vagar to Reykjavik, arriving in Reykjavik just before dark on the 21st. The flight time from Vagar to Reykjavik was only 3:55! The first flight of the aircraft from an Icelandic aerodrome took place the following day when Mr. Norðdahl took her up for a jolly around Reykjavik. The aircraft has ever since been used as an aerobatic aircraft for her owners, and along the way has participated in most airdisplays held in Iceland. Since arriving in Iceland, she has had numerous owners, but the current owners are Elias Erlingsson, Friðrik Ingi Friðriksson and Sigurjón Valsson.


A brief history of Mudry Cap 10B aircraft:

The CAP-10B is a French aerobatic training aircraft and it was developed from the Piel Super Emerude homebuilt aircraft. The first flight of the CAP 10 was in 1968 and it was put into production with a modified tail as the CAP-10B. An early user of the CAP-10B was the French Navy, which used it for many years for the initial training of their pilots. Other military users of the CAP-10 are Mexico, Marocco and Australia. About 200 of these aircraft have been sold to private pilots and flying clubs through-out the years, and many of the top aerobatic pilots of today have started their carrier on the CAP-10B. A revised version is still in production today as the CAP-10C. 


TF-UFO - Tæknilegar upplýsingar / TF-UFO Specs:

Tegund / Type:

CAP-10B

Árgerð / Year of manufacture:

1978

Framleiðslu númer / Construction number: 

86

Fyrri skráningar / Previous identities:

Engin / None

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

1

Vænghaf / Wing span:

8,06 meters

Lengd / Length:

7,16 meters

Hreyfill / Engine:

180 hp Lycoming O-360

Farflugshraði / Cruise speed:

125 hnútar / KTS

Eigendur / Owners:

Sigurjón Valsson

Elías Erlingsson

Friðrik Ingi Friðriksson


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-UFO
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft


Myndbönd með flugvélinni TF-UFO:
Myndbönd © Snorri B. Jónsson