þriðjudagur 7 september 09 2010


TF-KAH - Cessna 180 „Gustur“


   Information in English below

Um flugvélina TF-KAH:

TF-KAH var smíðuð árið 1955 og var fyrst skráð á Íslandi 27. apríl 1990 sem eign flugklúbbsins Þyts. Ferð vélarinnar til Íslands er sennilega einstök, þar sem henni var flogið um borð í Boeing 747 frá Cargolux flugfélaginu frá Bandaríkjunum til Luxemborgar og flogið þaðan til Íslands. Síðan vélin kom til Íslands, hefur hún alla tíð verið í eigu Flugklúbbsins Þyts.


Almennur fróðleikur um Cessna 180 flugvélar:

Cessna C-180 var þróuð út frá fyrr vél frá Cessna, það er að segja C-170B. Segja má að notaður hafi verið vængur af C-170B, settur á hann lengri skrokkur með stærri stélflötum sem voru kantaðir í stað rúnaðra á C-170. Einnig var í nýju vélinn mun stærri hreyfill, eða 225 hestöfl í stað 145 hestafla í C-170B.

Nýja flugvélin flaug í fyrsta skipti árið 1952 og var sett í sölu árið 1953. Árið 1956 var farið að framleiða flugvél sem var alveg eins og C-180 nema hafði nefhjól. Þessi nefhjólsflugvél varð C-182 Skylane, sem er í framleiðslu enn þann dag í dag. Þó byrjað væri að framleiða nefhjóls útgáfu, hélt C-180 áfram í framleiðslu. Árið 1960 kom svo fram á sjónarsviðið enn aflmeiri útgáfa af vélinn og fékk hún heitið C-185 Skywagon. 

Cessna C-180 var í framleiðslu allt til ársins 1981 og voru framleidd samtals um það bil 6200 eintök. Það verður að teljast nokkuð sérstakt að á tímabili voru í framleiðslu hjá Cessna þrjár vélar sem allar voru mjög skyldar, og segir það mikið um vinsældir C-180 að hvorugt nýja afbrigðið af henni velti henni úr sessi í framleiðslu.

Það hefur alla tíð verið litið á C-180 sem vinnuþjark, og eru þær enn þann dag í dag mjög vinsælar þar sem aðstæður eru erfiðar og bera þarf þungan farm. Þannig eru vélar af þessari tegund mikið notaðar í Alaska, á flotum, hjólum og skíðum, auk þess sem þær eru mjög vinsælar í Afríku.

Alls hafa tíu Cessna 180 vélar verið skráðar á Íslandi frá því hin sögufræga TF-HIS kom 1954.


     Information in English:

The history of TF-KAH:

TF-KAH was produced in 1955 but first registered in Iceland on the 27th of April 1990.  It´s trip to Iceland is pretty unique, as it was airlifted aboard a Cargolux Boeing 747 from America to Luxemburg and flown form there to Iceland. Since it was first registered, it has been in the ownership of Thytur flying club.



A brief history of Cessna 180 aircraft:

The Cessna C-180 was developed from an earlier Cessna product, i.e. the Cessna C-170B. Basically Cessna used the wings of a C-170B with a longer, stronger fuselage with bigger angled tail feathers. The engine in the C-180 was also considerably bigger than the earlier aircraft, 225 hp versus 145 hp for the C-170B.

The new model was test flown in 1952 and was placed into production in 1953. In 1956, a new variant was introduced, the C-182 Skylane, which was basically a C-180 with a nosewheel landing gear. The C-182 is still in production today. Even though a nosewheeled version was by now in production, the production of the conventional geared C-180 continued. In 1960, an up engined version of the C-180 appeared in the form of the C-185 Skywagon.

The C-180 was produced until 1981 with a total of an approximately 6200 examples built. It says a lot for the popularity of the C-180, that for some considerable time it´s two younger siblings were produced by it´s side without affection the production of the original C-180.

The C-180 is universally considered as a workhorse and are still very popular where conditions demand a high performance and a high payload. These aircraft are for example very popular in Alaska, flying on wheels, skies or floats, and in Africa.

Ten examples of the Cessna 180 have been registered in Iceland with TF-HIS being the first and most famous in 1954. It is still going strong.


TF-KAH - Tæknilegar upplýsingar / TF-KAH Specs:

Tegund / Type:

Cessna C-180

Árgerð / Year of manufacture:

1955

Framleiðslu númer / Construction number: 

31997

Fyrri skráningar / Previous identities:

N-3199 / N-370G

Flugmaður / Pilot:

1

Farþegar / Passengers:

3

Vænghaf / Wing span:

10,98 meters

Lengd / Length:

7,98 meters

Hreyfill / Engine:

225 hp Continental O-470

Farflugshraði / Cruise speed:

150 mílur / MPH

Eigandi / Owner:

Flugklúbburinn Þytur


Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða fleiri myndir af flugvélinni TF-KAH
Click on the picture to see a photogallery of this aircraft