Góðan dag ,
Nú er flugárið okkar 2022 senn á enda, en það er samt ekki alveg búið, það hefur verið siður að skreppa í eitt gamlársdagsflug og þiggja kakó hjá Selfissingum, vonandi verða sem flestir á ferðinni þetta árið ef veður leyfir.
Árið hófst með hefðbundnum aðalfundi í enda febrúar og fyrsta fimmtudagskaffið okkar hófst síðan í byrjun maí. Veður var með þokkalegu móti þetta sumarið og lítil truflun á kaffikvöldum okkar. TF-BOK lauk svo fimmtudagskaffinu með glæsilegu villibráðahlaðborði í september. Kærar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg við að halda uppi þessari góðu hefð.
Lendingakeppnin okkar var á sínum stað í júní, eða því sem næst, en ekki tókst að halda seinnihluta keppninnar og því fór Tynes-bikarinn að þessu sinni til sigurvegara fyrri keppninnar, Hjartar Þórs Haukssonar, og fékk hann bikarinn afhentann á jólahlaðborðinu.
Wings & Wheels hátíðin okkar er ávalt haldin síðustu helgina í ágúst eða á sama tíma og bæjarhátíðin "Í túninu heima" í Mosfellsbæ. þetta er án efa hápunkturinn í starfi okkar og margar hendur koma þar að svo hátíðin verði sem glæsilegust og vill klúbburinn þakka öllum þeim sem að þessu komu. Að þessu sinni fékk klúbburinn mikið lof frá Mosfellsbæ fyrir frábæra sýningu og gott skipulag og við erum auðvitað ákaflega stolt af því.
Jólahlaðborðið okkar var haldið í byrjun desember og var vel sótt. Grillvagninn sá um að allir færu vel saddir heim og Daddi Diskó sá um jólatónlistina.
Bensínmálin okkar hafa því miður ekki alltaf verið eins og menn vildu, en við erum að gera okkar besta til að halda úti þessari þjónustu á svæðinu, það er bara því miður svolítið flókið mál að fá bensín og ekki hjálpar verðið! Við fengum nýja áfyllingu á tankinn í byrjun desember og ætti það að duga fram til páska eða rúmlega það. Verðið verður það sama og á Selfossi (til klúbbfélaga).
Fyrir hönd stjórnar Flugklúbbs Mosfellsbæjar vil ég óska félagsmönnum, félagskonum og fjölskyldum gleðilegra jóla og farsældar á nýju flugári.
Halldór Kr Jónsson
Formaður
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|