Ágætu félagsmenn,
Föstudagskvöldið 22. apríl verður tiltekt á flugvellinum (næsta föstudag). Við ætlum að hittast klukkan 19:30 og hreinsa grjót og þara úr vestur enda flugbrautarinnar. Jafnframt þarf að hengja upp vindpoka á báðum endum og eitt og annað smálegt.
Ágætt væri ef þið gætuð komið með hjólbörur og hrífur til að auðvelda vinnuna. Af fenginni reynslu, þá hennta laufhrífur best í steina og þara.
Að lokinni hreinsun verður boðið upp á léttar veitingar í fljótandi formi. Það er nú einu sinni föstudagur!
F.h. stjórnar
Sigurjón Valsson
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|