Góðir félagar,
Eins og vafalítið fór ekki framhjá neinum gekk suðvestan hvassviðri yfir höfuðborgarsvæðið í fyrrinótt. Samfara þessu hvassviðri var stórstraumur og fór flugvöllurinn okkar ekki varhluta af hamförunum. Ekki urðu sjáanlegar skemmdir, en þara og allskonar rusli skolaði upp á vesturenda flugbrautarinnar þannig að fyrstu ca. 150 metrarnir eru varhugaverðir.
Ef þið ætlið að nota flugveðrið sem spáð er um helgina, vinsamlegast hafið í huga að vesturendinn er varasamur og getur beinlínis verið hættulegur.
Við munum að sjálfsögðu reyna að hreinsa þetta eins fljótt og auðið er, en ekki er víst að það takist fyrir helgi. Hafið augun hjá ykkur ef þið ætlið að nota flugvöllinn.
Fly safe!
Sigurjón Valsson
|