Kæru félagar.
Næstkomandi laugardag þann 22. apríl ætlum við að safnast saman á flugvellinum í Mosó og undibúa aðstöðuna okkar fyrir sumarið.
Það sem þarf að gera er eftirfarandi:
Hreinsa flugbrautina.
Endurnýja vindpoka.
Þrífa fyrir utan skýlin.
Mála það sem þarf á klúbbhúsinu (ef viðrar).
Við ættlum að mæta kl 11:00 við klúbbhúsið og skipta á milli okkar verkum. Þeir sem eiga hrífur, vinsamlegast takið þær með.
Að verki loknu munum við grilla okkur hamborgara og skolum þeim niður með einhverju ljúffengu.
Margar hendur vinna létt verk, mætum sem flest og komum okkur í gírinn fyrir sumarið.
Kveðja
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|