Góðan dag ,
Klúbbnum hefur borist neðangreint boðsbréf frá félögum okkar í Þyt þar sem félagsmönnum FKM er boðið til veislu. Þessu góða boði er hér með komið á framfæri.
Laugardaginn 3. júní n.k. kl. 17.00 höldum við upp á 30 ára afmæli Flugklúbbsins Þyts, í flugskýli okkar Vetrargarðinum. Samkoman hefst í framhaldi af flugdegi á Reykjavíkurflugvelli sem haldinn er í tilefni af 80 ára afmælis flugs á Íslandi, en Þytur var einmitt stofnaður þann sama dag fyrir 30 árum.
Nú í sumarbyrjun er tilvalið að hittast, spjalla saman og ráðgera starfsemi næstu mánaða. Í boði verður kaffi, gos og öl, ásamt léttum veitingum. Einnig verður hljómsveit á staðnum sem heldur uppi léttri stemningu. Stjórn Þyts hvetur alla "fyrrverandi og núverandi" félaga að láta sjá sig.
Sjáumst sem flestir og eigum góða stund saman!
Með kveðju,
Stjórn Þyts
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|