Góðan dag ,
Nú er allt að gerast hjá okkur í bensínmálum. Dælan er kominn í lag og tankurinn fullur af bensíni handa félagsmönnum.
Þeir sem eru með gamla lykla þurfa að skila þeim inn og fá nýjan lykil gegn því að greiða kr. 5.000 í þóknun. Þeir sem vilja fá nýjan lykil en hafa ekki lykil fyrir þurfa að greiða kr. 8.000 fyrir lykilinn.
Á næsta fimmtudagskvöld verðum við á staðnum til að gera nýja samninga við flugvélaeigendur á svæðinu og afhenda lykla. Lykill fæst EKKI afhentur nema gegn greiðslu.
Það er kominn lykill í klúbbvélina TF-RJC, tilbúinn til notkunar. Athugið að það er ekkert pin-númer, bara stinga lyklinum í og bíða smá stund eftir að dælan komi með skilaboð um að fjarlæga lykilinn.
Athugið að bensínið á tankinum er 95 okt. blandað við 100LL sem var fyrir, það skýrir hvers vegna blái liturinn er enn, ef einhver fer að velta þessu fyrir sér.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|