Góðan dag ,
Fyrst vil ég nefna að það er komið bensín á tankinn á Tungubökkum og vélin er nýbúin í skoðun þannig að það er engin afsökun að skella sér ekki í loftið.
Fimmtudagskaffið okkar er komið í gang á hverjum fimmtudegi kl. 19 - 22.
Og þá að máli málanna. Okkur hefur borist bréf vegna fyrirhugaðrar flughátíðar á Hornafirði í sumar og birti ég það hér óbreytt. Auðvitað hvetjum við sem flesta til að mæta á Hornafjörð í sumar. Það verður boðið uppá AVGAS á staðnum.
Góðan daginn
Við fjölskyldan ætlum að halda flughátíð á Hornafjarðarflugvelli helgina 24-26 júní næstkomandi í tilefni þess að Vignir Þorbjörnsson (afi) hefði orðið 75 ára en eins og margir vita sinnti hann flugþjónustu hér á Hornafirði allt sitt líf og fannst fátt skemmtilegra en að hitta fólk og sjá flugvélar. Stefnan er sett á að hafa allskonar fjör í gangi yfir helgina þar sem flugsýning á Laugardeginum yrði aðalatriðið. Okkur langaði til þess að athuga hvort að einhverjir félagar í flugklúbbi Mosfellsbæjar hefðu áhuga á að koma og vera með okkur, hvort sem það væri að taka þátt í flugsýningunni, hafa kynnisflug fyrir gesti, bjóða uppá útsýnisflug yfir svæðið eða einfaldlega bara koma og vera með. Endilega látið okkur vita sem fyrst ef þið hafið áhuga á að taka þátt svo við getum sett það inn í dagskránna.
Fyrir hönd flug fjölskyldunnar á Hornafirði Vigdís María Borgarsdóttir 857-5788
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|