Góðan dag ,
Það hefur tæpast farið fram hjá neinum að bensínverð hefur farið hratt hækkandi í heiminum og kemur ílla við okkur í fluggeiranum. Nú er svo komið að það er farið að bíta ílla í okkur á Tungubökkum eins og hjá öðrum og við því þarf að bregðast.
Þann 28. apríl fengum við nýja áfyllingu á tankinn okkar samkvæmt nýjasta og hagstæðasta verði sem í boði var. Lítrinn af bensíni er því kominn í kr. 402 (m/vsk) hjá okkur núna.
Þetta hefur líka áhrif á rekstur klúbbvélarinnar okkar TF-RJC og okkur er því nauðugur kostur að hækka tímagjaldið á henni í kr. 26.000 frá og með 1. júní. Þetta er ekki einu sinni öll sú hækkun sem hefði þurft að koma til en okkur þótti nóg um og settum þakið hér og svo er bara að sjá hvort þetta dugar.
Við erum alls ekki þeir einu sem þurfa að grípa til slíkra hækkana, aðrir klúbbar í kringum okkur eru í sömu aðgerðum.
Við hörmum að þurfa að hækka gjöldin en hjá því er bara ekki komist. Nú er bara að horfa fram á veginn og vonast eftir betri tíð með blóm í haga!
Bestu flugkveðjur
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|