Flugklúbbur Mosfellsbæjar

Stórskala módelsamkoma á Tungubökkum þann 17. ágúst

Laugardaginn 17. ágúst  verður haldin Stórskala módelsamkoma á Tungubakkaflugvelli. Af því tilefni vil ég biðja flugmenn flugvéla í hlutföllunum 1/1 að sýna tillitsemi og ekki nota Tungubakka til snertilendinga. Fyrir brottflug af vellinum, vinsamlegast hafið samband við Einar Pál í skýli 1 og skipuleggið brottflugið með tilliti til módelflugs. Fyrir aðflug að vellinum, vinsamlegast kallið á 118.2 (sem hlustað verður á) og fljúga svo yfir brautina í 1000 fetum áður en komið er inn til lendingar – þetta gefur módel flugmönnum færi á að koma sýnum vélum á jörðina eða suður fyrir braut þar sem þær eru ekki fyrir aðflugi. 

Allir eru velkomnir að skoða módelin, en mörg af þeim eru hreinasta völundarsmíð og vonumst við til að sjá sem flesta!