Flugklúbbur Mosfellsbæjar

Klúbbflugvél FKM – TF-RJC / Piper PA-28 Archer

Flugklúbbur Mosfellsbæjar á eina flugvél sem meðlimir klúbbsins hafa afnot af á kostnaðarverði. Flugvél FKM er TF-RJC sem er af gerðinni Piper PA-28-181 Cherokee Archer II. Hún er árgerð 1979 og er í mjög góðu ásigkomulagi. Í flugvélinni er 180 hestafla 4 strokka Lycoming O360 mótor.

Meðlimir mega fljúga vélini eftir að hafa undirgengist „tékk“ á flugvélina. Meðlimir greiða kr. 26.000 fyrir per tacho-tíma. Innifalið í því verði eru öll gjöld s.s. tryggingar, bensín og skoðanir.

Umsjón með klúbbvél er í höndum Sigurjóns Valssonar, S: 858-4286 (sigurjon2011@gmail.com). 

Aðrar flugvélar sem FKM hefur átt í gegnum árin:

TF-GMG – Cessna 170B (varð síðar TF-OMG í eigu Vængja ehf)
TF-MOS – Cessna 170B (varð síðar TF-TOM í eigu Júlíusar Þórólfssonar)
TF-TWA – (síðar TF-MOS) – Champion Citabria (er í uppgerð á Reykjavíkursvæðinu)
TF-FKM – Piper Super Cub (varð síðar TF-ABJ í eigu Arngríms Jóhannssonar)
TF-GEV – J3 Piper Cub (síðar TF-CUP og er nú í eigu Gísla Sigurjónssonar)

TF-RJC á flugi

TF-RJC á flugi

Myndir: Baldur Sveinsson