Wings and wheels hátíðin 31. ágúst 2024
Wings and wheels hátíðin hefur undanfarin fjöldamörg ár verið haldin á flugvellinum á Tungubökkum í tengslum við bæjarhátíðina í Mosfellsbæ, „Í túninu heima“. Undanfarin ár hefur hátíðin verið samstarfsverkefni Flugklúbbs Mosfellsbæjar, Ferguson félagsins og fornbílaklúbbsins.
Í ár verður hátíðin haldin þann 31. ágúst milli klukkan 12 og 17 en síðasta dagskráratriðið er karamellukast fyrir börnin sem verður klukkan 16:30 stundvíslega.
Hátíðin er mjög umfangsmikil og krefst margra sjálfboðaliða við umferðarstjórnun, sölu og bakstur í sjoppunni okkar ásamt öryggisvörslu við flugvöllinn. Ef þú hefur tök á að bjóða fram krafta þína sem sjálfboðaliði þann 31. ágúst, þá endilega hafðu samband á fkm@fkm.is
