Flugklúbbur Mosfellsbæjar

Aðalfundur FKM 14. mars 2015

Ágætu félagar,

Aðalfundur FKM var haldinn laugardagsmorguninn 14. mars 2015 klukkan 10.  Veðrið var ekki ákjósanlegt, en yfir landið gekk akkúrat á þessum tíma eitt mesta óveður í manna minnum. Sem dæmi um það má nefna að á skilti Vegagerðarinnar við hringtorgið inn á Mosfellsheiðarafleggjarann stóð að vindur í hviðum á Mosfellsheiði væri 53 m/s þegar fundur var að hefjast! Þrátt fyrir þetta var þokkaleg mæting á fundinn, en 23 sálir voru taldir á fundinum.

Eftir að fundarmenn höfðu gætt sér á léttum morgunverði í boði klúbbsins tóku við venjuleg aðalfundarstörf.  Þeir aðilar í stjórn sem áttu að ganga úr stjórn samkvæmt lögum gáfu allir kost á sér til áframhaldandi setu og voru endurkosnir einróma.  Stjórn klúbbsins er því óbreytt eftir þennan aðalfund.

 

Kv.

Sigurjón