Góðan dag ,
Fundargerð aðalfundar
Aðalfundur Flugklúbbsin fór fram þriðjudaginn 26. maí á Tungubökkum. Það er helst að Bára Einarsdóttir baðst lausnar frá formennsku og Halldór Kr Jónsson kom inn í hennar stað. Hækkun inntökugjald úr 80.000 í 120.000 var samþykkt, auk þess hækkar tímagjald vélar úr 18.000 í 20.000 frá 1. júní. Fundargerð aðalfundar fylgir hér með í viðhengi.
Sumardagskráin
Sumardagskráin okkar hefur riðlast til um mánuð vegna Covid19 en við erum komin á skrið aftur. Dagksráin er nú komin á vefinn en fylgir einnig með í viðhengi.
Tiltekdardagur
Tiltektardagurinn okkar hefur einnig færst til en verkefnin eru enn til staðar. Við þurfum að raka brautarendann, setja upp nýjan vindfána og huga að svæði og húsum. Við ætlum að hittast laugardaginn 6. júní kl. 12:00 og byrja á Brunch og taka síðan til hendinni.
Bensínmál
Við tókum þátt í stórri sérpöntun ásamt fleiri klúbbum hjá Olís í vetur og ættu þær birgðir að vera að detta inn á næstu dögum og þá verður tankurinn okkar fylltur á ný.
Annað
Í klúbbhúsið er nú komin kaffivél sem hellir uppá einn bolla í einu. Vinsamlega passið að skilja ekki við vélina með púðann í og vatn í tanknum.
Bestu kveðjur
Stjórnin
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|