Kæru félagar
Það er hefð fyrir því að bjóða upp á vöfflukaffi á Tungubökkum á 17. júní og við munum að sjálfsögðu ekki skorast undan því.
Okkur langar nú hins vegar að taka þetta lengra og gera þetta kannski svona "win-win" fyrir bæjarbúa í Mosó og Flugklúbbinn með því að bjóða gestum í einn flugtúr, ca 10-15 mín. Þetta hefur ekki verið auglýst og er eiginlega "last-minute-idea" og því algerlega óformlegt.
Ég tel að þetta mundi treysta enn betur samband okkar við bæjarbúa því eins og við vitum þá er ekkert sjálfsagt að fá frið með flugvöll í grend við byggð. Hér er tækifæri til að sá "góðum fræjum" og fá fólk til að líta á flugvöllinn og starfssemi okkar sem eitthvað gott en ekki vont.
Ef einhver ykkar á vél á Tungubökkum eða hefur aðgang að vél og gæti séð af tíma sínum og nokkrum bensíndropum dagpart á morgun, þá væri frábært að sjá ykkur.
Kaffið er milli kl. 10:00 og 17:00.
P.S. Það er búið að fylla á bensíntankinn okkar.
17. júní kveðja
Halldór Kr Jónsson - Formaður
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|