Kæru félagar í FKM
Kærar þakkir fyrir samveruna í klúbbhúsinu í morgun og vonandi græddu einhverjir eitthvað á þessu spjalli okkar.
Hér eru helstu punktar úr umræðunni fyrir ykkur og þá sem ekki komust og ætti að nýtast við að plana flug að gosstöðvunum.
Tíðnir
Tungubakkar............................................... 118.2
Reykjavík Turn............................................. 118.0
Reykjavík Grund............................... 121.7
Keflavík Turn............................................... 118.3
Vestursvæði/Gos......................................... 131.8
Austursvæði................................................ 119.9
Áætlun og flugleið
- Kalla í BIRK turn sem fyrst eftir að komið er í loftið á BIMS (samband næst í ca 300 fetum).
- Til þess að geta flogið til BIRK eða að gosi þarf að skila inn flugplani hjá BIRK (424-4142).
- Fljúgum aldrei inn í Reykjavík ATC fyrr en turn hefur gefið heimild til þess.
- Oft ast heimilar turn flug inn leið 2, yfir flugvöllinn og út leið 6. Það er þó hægt að biðja um aðrar leiðir eins og að fljúga fyrir ofan bæinn, um langavatn og vestur eftir.
- Ef flugplani er lokað eftir kl. 23:00 þá þarf að hringja í Fjarritun (424-4141)
- Verðum að hafa Transponder og 2 Radio.
Yfir gossvæði
- Erum með stillt á 131.8 (hlusta á 118.3)
- Gott að kalla áður en komið er inn í svæðið
- Láta vita hvaðan þú ert að koma inn í svæðið og í hvaða hæð
- Fá stöðuna á því hvar og í hvaða hæð vélar eru
- Hvernig þær eru að fljúga (hringur eða skeifa)
- Best að halda sig vind-megin við gosið, lágmarkshæð 1.500 fet, mesta hæð 2.500 fet.
- Ekki fljúga lágt yfir glóandi hraun og alls ekki inn í reyk.
Upplýsingar
ISAVIA – Forflugsupplýsingar (ýmsar upplýsingar)
ISAVIA – NOTAM (athuga með takmarkanir yfir gossvæði)
ISAVIA – AIC A 014/2021 (skipulag vegna eldsumbrota á Reykjanesi)
https://eaip.isavia.is/AMDT_002-21_2021_04_23/
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|