Flugklúbbur Mosfellsbæjar

Lendingarkeppni FKM Tynes bikarinn – fyrri hluti

Fyrri hluti lendingarkeppni FKM fór fram í blíðskaparveðri á flugvellinum á Tungubökkum fyrr í dag.   Nokkur fjöldi fólks mætti á staðinn til að fylgjast með keppninni og boðið var upp á kaffi, nýbakaðar vöfflur og kökur í klúbbhúsinu.

Samtals voru 11 keppendur og var keppnin gríðarlega skemmtileg.  Hérna fyrir neðan má sjá hvernig lendingar voru framkvæmdar:

1. Lending  – Frjáls aðferð.  

2. Lending – Lending án afls.  Afl dregið niður í hægagang þvert af marki

3. Lending – Lending án afl og án flapa

4. Lending – lent yfir 2 metra háa línu 50 metra frá markinu.