Flugklúbbur Mosfellsbæjar

Wings & wheels – 28. ágúst 2010

Laugardaginn 28. ágúst var haldin fornvélasýning á Tungubakkaflugvelli. Gríðarmargt fólk mætti á svæðið til að virða fyrir sér gömul farartæki af ýmsum gerðum. Þegar mest var voru yfir 30 flugvélar og 60 bílar á svæðinu auk nokkurra dráttarvéla og mótorhjóla. Flugklúbburinn vill þakka þeim sem komu með gömul farartæki á svæðið sérstaklega fyrir komuna.

← Til baka í myndasafn