Kæri félagsmaður
Nú styttist í stórhátíðina okkar á Tungubökkum, Wings & Wheels, en þetta er nú orðinn stærri viðburður en flesta hafði grunað í upphafi og að mörgu þarf að hyggja til að allt gangi slysalaust fyrir sig og sé klúbbnum til sóma hingað til sem endranær.
Við óskum nú eftir aðstoð ykkar félagsmanna við bæði undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar. Þau sem geta ljáð hönd eða hendur eru vinsamlega beðin um að senda póst með nafni og síma á fkm@fkm.is og tilgreina einnig hvar þið getið komið að notum og hvort það er allan daginn eða hluta úr degi.
Hátíðin stendur frá kl. 12:00 til kl. 17:00 laugardaginn 31. ágúst
Það sem þarf að gera er eftirfarandi:
1. Stilla upp svæðinu (mæting kl. 9:00).
2. Frá kl. 12:00 til 17:00 þarf að manna umferðarstjórnun, gæslu við flugvélar og ökutæki, gæslu við öryggisgyrðingu við völlinn og starfsfólk í veitingasölu.
3. Eftir kl. 17 þarf síðan að taka til á svæðinu.
Með von um jákvæð og skjót viðbrögð
Stjórnin.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|