Góðan dag ,
Aðalfundur FKM fór fram að kvöldi miðvikudags 20.05.2020
Fundurinn var haldinn í félagsheimili FKM, þar sem reynt var eftir fremsta megni að fara ekki á skjön við COVID-19 reglurnar í landinu.
Fundurinn var upphaflega boðaður 21. mars en var frestað vegna veirunnar.
Venjuleg aðalfundarstörf fóru fram þar sem reikningar voru kynntir og samþykktir. Engar lagabreytingar lágu fyrir. Lagt var til hækkun á inntökugjaldi klúbbsins frá og hækkun á tímagjaldi klúbbvélar sem tekur gildi frá 1. júní og var það samþykkt. Bára Einarsdóttir formaður FKM hafði sagt af sér sem formaður og í stjórnarsetu. Þá var auglýst eftir framboði til formanns og einum stjórnarmanni. Framboðsfrestur rann út í febrúar 2020 eftir að hafa verið framlengdur.
Halldór Jónsson bauð sig fram til formanns FKM og Guðmundur Guðjónsson bauð sig fram til stjórnarsetu. Þar sem engin gagnframboð bárust fengu þeir einróma kostningu. Að öðru leiti er stjórnarskipan óbreitt.
Tveir félagar FKM voru útnefndir heiðursfélagar fyrir mikið og ósérhlífið starf í þágu klúbbsinns í ára raðir. Þetta eru þeir Jón Sverrir Jónsson og Hjörtur Ingólfsson. Bára Einarsdóttir fráfarandi formaður afhenti þeim áletraða heiðursskyldi frá klúbbnum sem þakklætisvott um þeirra störf.
Að síðustu þakkaði Halldór Jónsson fráfarandi formanni Báru Einarsdóttur fyrir sitt frábæra og ósérhlífna starf í þágu klúbbsins og afhenti henni veglegan bómvönd og kveðju frá stjórn og félagsmönnum.
Stjórn FKM
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|