Góða kvöldið ,
Nú er sumarið að sigla inn og ekki seinna vænna en að koma öllu í stand fyrir sumarið á Tungubökkum.
Á laugardaginn, 23. apríl, ætlum við að hittast á kl. 11:00 og hreinsa aðeins til á svæðinu og dusta mesta rykið af klúbbhúsinu í leiðinni. Margar hendur vinna létt verk og eins og venjulega og veðurspáin lofar góðu. Gott væri ef menn hefðu með sér hrífur í þarann á vesturendanum og bíll með kerru eða pallbíll er vel þeginn líka.
Meðfylgjandi í viðhengi er einnig sumardagskráin okkar á pdf formi, en hún er einnig komin inná heimasíðuna okkar www.fkm.is.
Vonumst til að sjá sem flesta á laugardaginn.
Gleðilegt sumar til ykkar, á á morgun :)
Formaður.
Should you have questions, comments, feature requests, do not hesitate to contact our support or chat live with them.
|